Soffice - 90% Burstað Baby Alpakka - 230 gr. Moldvörpu (prjónað á 6-7 mm.)

5.900 kr

Það er erfitt að lýsa þessu garni með orðum, alveg himneskt viðkomu, minnir helst á andardúnshreiður 😇🥰 hespan er mjög stór vegna þess hversu dúnkennt garnið er, til viðmiðunar var tekin mynd af því með gleraugum til að átta sig betur á stærð hespunnar sem vegur einungis 230 gr. þú finnur ekki mýkra og dúnkendara garn, alveg án gríns 😍🦙

Soffice er fullkomið í peysur, vesti, teppi og fl. Þú ert ekki lengi að prjóna fallegt handverk úr þessu dásamlega garni þar sem prjónastærðin er 6-7 mm. 

Þegar talað er um Baby Alpakka merkir það að ullin kemur frá mýksta hluta dýrsins sem er á kviðnum.

Kemur í tveimur litum, Moldvörpu og Ryðrauðu

Smá leyndó 🤫 þar sem garnið kemur í einni 230 gramma hespu eru færri endar að fela 😜 

Innihald 90% Alpakka 10% Polýester

Þyngd 230 gr. 

Lengd 50 gr. sirka 100 m.

Prjónastærð 6 – 7 mm.

Prjónfesta: Á prjóna nr. 7 eru  12 ykkjur = 10 cm. eftir þvott. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.