Romeo - Baby Alpakka Bómull - 50 gr. - Sæblár

890 kr

Romeo er áferðafalleg blanda af 47% Baby Alpakka 42% Bómull 4% Extrafine Merino og 7% Polýester.

Þetta smjörmjúka garn er tilbúið til að henda á prjónana! Hér færðu blöndu af Alpakka, Bómull og Extrafínum Merino, styrkt með smá pólýester. það er fléttað/spunnið eins og hestataumur úr mýkstu trefjum og útkoman er loftkennt létt garn í þykkt sem gerir það hentugt í mörg verkefni. Mjög auðvelt og gott að prjóna úr því.

Innihald 47% Baby Alpakka 42% Bómull 4% Exrafínt Merino 7% Pólýester

Þyngd 50 gr. ( afgreitt í 50 og 100 gramma hnotum, fer eftir pöntuðu magni )

Lengd 50 gr. sirka 115 m.

Prjónastærð 5

Munið að gera ykkar eigin prjónfestu. 16 lykkjur = 10 cm

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.