QORI - Blásið Alpakka - eitt og sér eða sem fylgiþráður - Kopar - 25 gr.

690 kr

Fyrir þá sem geta ekki notað Mohair sem fylgiþráð þá er þetta garn lausnin.  79% Alpakka og 21% Polýester, mjög mjúkt og létt í sér þar sem ullinni er blásið í hólk.

( Það er aðeins grófara en það sem hefur fengist hér (til 2 litir núna) og heitir "Blásið Alpakka fylgiþráður" ca. einu til einu og hálfu númeri stærri prjónn, aðeins hærra hlutfall af Alpakka )

Garnið er ekki spunnið á hefðbundin hátt heldur er ullinni blásið inn í hólk úr Pólýester sem gefur því sérlega mikinn léttleika.

Hentar fullkomnlega með td. 100% Ítölsku Merino 100% Ítalskt Merino

Ef pantað er 50/75/100 gr. er það afgreitt í einni hnotu. (færri endar að fela ,)
 
Innihald 79% Alpakka 21% Polyester

25 gr. eru sirka 160 metrar.       (fínna garnið er 250 m. 25.gr.)

Prjónastærð  4 - 4.5 mm.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.