Palliettugarn - 55% Bómull 45% Polýester - Nr. 11 - 50 gr.

980 kr

Garnið hentar í allskonar handverk. Mjúkt garn úr bómull og pólýester með ör smáum palliettum sem stirnir á. Sumir litirnir hafa einnig gljáa í þræðinum.

Töff sem fylgiþráður eða eitt og sér einfalt eða tvöfalt, í munstur og hvað eina sem þér dettur í hug. Þráðurinn er mjög sterkur.

Kom í 13 litum.

Innihald 55% Bómull 45% Polýester

Þyngd 50 gr.  (50 gr. sirka 300 m.)

Ef pantað er 50/75/100 gr. er það afgreitt í einni hnotu. (færri endar að fela ,)

Prjónastærð 2,5-3,5

Prjónfesta, á 3,5 mm. prjóna er  22 lykkja = 10 cm. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.