OEKO-TEX Mórberja Silki og Merino - 300 gr. - Beinhvítt (100% náttúrulegt)
Oeko-Tex Silki Merino – Blandan samanstendur af 34% OEKO-TEX Mulberry silki sem er ræktað "alvöru 100% silki" náttúrulegar prótein trefjar og 64% OEKO-TEX Merinoull.
Hér færð þú hreint náttúrulegt garn í mjúkri og sveigjanlegri blöndu af OEKO-TEX Merino og Mórberjasilki. Það er OEKO-TEX vottað og merino ullin er superwash meðhöndluð. Garnið er spunnið úr 8 þráðum sem hver samanstendur af Mórberjasilkiþræði og Merinóþræði. Prjónað hefur garnið góðan teygjanleika og er virkilega þægilegt viðkomu.
Garnið kemur í beinhvítu og hentar einnnig vel til litunar.
Hvað þýðir Oeko-tex?
OEKO–TEX® Standard 100 er vöruvottun sem gerir kröfur um innihald efna - sem eru eða - grunur leikur á að séu heilsuskaðleg, hér má lesa um vottunina: OEKO-TEX®
Innihald 64% Merino 34% Mulberry Silki (100% ekta silki)
Þyngd 300 gr. sirka 1350 m. ( 50 gr. ca. 225 m.)
Prjónastærð 2-3 mm.
Prjónfesta 25 lykkjur = 10 cm.
Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
Til í beinhvítu. (má lita)
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.