





Linea Hör og bómull - Turkisblár 100 gr.
Fengum litla sendingu af þessu skemmtilega náttúrlega garni sem er úr 3 þráðum af 100% hör og 1 þræði bómull. Hör garn hentar td. vel í sumartopp.
Innihald 75% Hör og 25% Bómull
Þyngd 100 gr. sirka 260 m. (50 gr. sirka 130 m.)
Prjónastærð 3-4
Prjónfesta, á 3-4 mm. prjóna er 20-22 lykkjur = 10 cm. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.