Kid Mohair 25 gr. - Nr.077 Turkisblár

690 kr

Kid Mohair garnið okkar er fíngert Mohair garn úr 67% Kid Mohair og 33% Polýester.

Garnið hentar einkar vel sem fylgiþráður, en má vissulega nota eitt og sér með því að vinda upp fleiri en einn þráð saman. Gefur handverkinu þínu virkilega fallega mjúka áferð.

13 litir í boði, mis mikið til af hverjum lit.  Garnið er selt í 25 gr. hnotum.                         

Ef pantað er 50/75/100 gr. er það afgreitt í einni hnotu. Dæmi, ef pöntuð eru 150 gr. koma þau í einni 100 gr. og einni 50 gr. hnotu.
 
Innihald 67% Kid Mohair og 33% Polyester
Þyngd 25 gr. 
Lengd 50 gr. sirka 500 m.
 

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.