Fire - Burstað Alpakka Akrýl - 50 gr. - Veiðigrænn.

590 kr

Burstað Alpakka garn, súper mjúkt og létt. Garnið má bæði nota eitt og sér eða með fylgiþræði.  

Á myndum má sjá prjónaprufu af garninu, ásamt prufu með Stanford Burstuðu Mohair í veiðigrænu. Prjónaprufur eru gerðar á prjóna nr.5

Garnið er selt í 50 gr. hnotum.                         

Ef pantað er 50/75/100 gr. er það afgreitt í einni hnotu. (færri endar að fela ,)
 
Innihald 48% Alpakka 9% Polyester 36% Akrýl

Lengd 50 gr. sirka 180 m.

Prjónastærð 5-7 mm.

Á prjóna nr. 5 eru 17 lykkjur 10 cm. Best er að gera sína eigin prjónfestu prufu.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.