Caral - 45% Alpakka 40% Merino extra fine 15% Extra Superkid Mohair - Beinhvítt 50 gr.

1.080 kr

Caral - Alpakka Merino Mohair ullarblandan er ofurmjúkt og áferðafallegt garn úr 100% náttúrulegum efnum. 45% Baby Alpakka, 40% Merino extrafine og 15% Extra Superkid Mohair. Hreint lúxusgarn sem hentar td. vel með Baby Alpakka Merino og Baby Alpakka Suri garninu okkar.

Í peysur, vesti, teppi og fl. Er bæði fyrir prjóna og heklunálar. 

Kemur í beinhvítu. Hentar einnig til litunar.

Innihald 45% Baby Alpakka 40% Merino extra fine 15% Extra Superkid Mohair 

Þyngd 50 gr. 

Lengd  50 gr. ca. 100 m.

Prjónastærð 4 mm.

Prjónfesta:  Á prjóna nr. 4 eru 21 lykkja = 10 cm. Garnið þolir jafnvel stærri prjóna. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

Ef pantað er 50/100/150 gr. er það afgreitt í einni hnotu. 

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.