Blásið Alpakka Merino 50 gr. Bleikur

890 kr

Bonfil garnið okkar er þykkt blásið garn úr 52% Merino, 23% Alpakka og 25% Polýester.

Garnið er ítalskt eins og allt okkar garn. Í stað þess að garnið sé spunnið á hefðbundin hátt er Merino og Alpakka ullinni blásið inn í hólk úr pólýester, sem skilar sér í sérlega léttu, mjúku og bústnu garni.

Garnið má nota í hvað sem hugurinn girnist, peysur, húfur, vettlinga eða kósý teppi, gaman er að blanda saman litum, má nota bæði fyrir hekl og prjón. Handverkið fær blæ af þæfðu útliti.

Innihald 52% Merino 23% Alpakka 25% Pólýester

Þyngd 50 gr. 

Lengd 50 gr. sirka 130 m.

Prjónastærð 7-8 mm.

Prjónfestan okkar á 7 mm. prjóna er 12 lykkjur = 10 cm.

En mundu að við prjónum öll mismunandi (fast, laust, eða þar á milli) svo við mælum alltaf með að gera sína eigin prjónfestu áður en byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.