Baby Alpakka Suri - 80% Baby Alpakka og 20% Suri Alpakka - 250 gr. Nr.37 - Beige

5.990 kr

Baby Alpakka Suri (100% Alpakka ull) 80% Baby alpakka og 20% Suri Alpakka Kemur í ca. 250 gr. hespum eins og Baby Alpakka Merino. ( hentar vel að blanda saman) Sama prjónastærð 3,5-5 mm 

Smá leyndó 🤫 þar sem garnið kemur í einni 250 gramma hespu eru færri endar að fela 😜 

Innihald 80% Baby Alpakka 20% Suri Alpakka (100% Alpakka)

Þyngd 250 gr. (ca. 450 m.)

Lengd 50 gr. sirka 100 m.

Prjónastærð 3½ – 5 mm.

Prjónfesta: Við mælum með prjónastærð 3½ – 5. Á prjóna nr. 4 eru 20 lykkjur = 10 cm. Á prjóna nr. 5 eru 17 lykkjur = 10 cm. Garnið þolir jafnvel stærri prjóna.

Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.