
Apollo Mohair 25 gr.
Apollo mohair er einstaklega létt og dúnkennt garn úr 50% mohair og 50% næloni. Blandan gefur garninu fallega mohairáferð, mjúkt og loðið yfirbragð og léttan, loftkenndan blæ. Það hentar vel fyrir þau sem vilja létt og loftkennt útlit í prjónaverkin sín eða leita að hagkvæmu mohairgarni til að nota sem fylgigarni.
Apollo er góður kostur í stað silkimohairs ef þú vilt hagkvæmt mohairgarn með mikla lengd og fallegri, lifandi áferð.
Apollo er úr 50% mohair og 50% næloni, sem gefur garninu bæði mýkt og styrk. Það er um 500 metrar á hver 50 grömm
Innihald 50% Mohair og 50% Nælon
Þyngd 25 gr. 250 m. ( afgreitt í 25, 50, 75,100, 150, 200 gramma hnotum, fer eftir pöntuðu magni ) Hægt að fá dokkurnar í þeirri stærð sem óskað er eða eins stórar og mögulegt er og skipt niður eins og vill með því að setja þær upplýsingar í skilaboða glugga við pöntun.
Lengd 50 gr. sirka 500 m.
Prjónastærð - Ráðlögð prjónastærð er 2–5 mm, eftir því hvaða áferð og útlit þú vilt ná fram. Apollo nýtur sín sérstaklega vel sem fylgigarni, en einnig er hægt að prjóna það eitt og sér fyrir létta og loftkennda útkomu.
Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
Handþvottur.