Meche - 85% Merino og 15% Cashmere 50/100/150/200 (50 gr. kr. 1.090,-) Brúnn

1.090 kr
Choose size

Meche - 85% Merino og 15% Cashmere - Yndislegt mjúkt garn sem má nota í fatnað bæði á börn og fullorðan. Kom í brúnu.

Þyngd 50 gr. 

Lengd 50 gr. sirka 200 m.

Ef pantað er 50/100/150/200 gr. er það afgreitt í einni hnotu. 

Prjónastærð 3,5 mm.

Prjónfesta, á 3,5 mm. prjóna er  21 lykkja = 10 cm. 

Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.