Bubble loðið Alpakka garn 50 gr.
Bubble Alpakka er virklilega spennandi, mjúkt og létt og loðið garn með Alpakka og Merino ull. Hentar í peysur, trefla, sjöl og húfur sem dæmi, garnið má prjóna eitt og sér, einfalt eða tvöfalt og með fylgiþræði.
Kemur í þessum fallega bleika lit.
Innihald 36% Alpakka 14% Merino 40% Akrýl og 10% Pólýester.
Þyngd 50 gr. (ca.110 m.).
Prjónastærð 6 – 7 mm.
Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.