Tiger fylgiþráður - 48% Merino 26% Mohair 24% Pólýester - 25 gr.

650 kr

Hversu fallegt getur það verið, hér er einstakur fylgiþráður á ferð með súper blöndu af Merino ull, Mohair og Pólýester fyrir styrkinn.

Kemur í einum lit, Vatnsmelónu 🍉 reynt er að spóla eins mikið í eina dokku og unnt er ef pantað er meira en 25 gr.

Á mynd má sjá þráðinn með Denimpaint bómullargarn litur B05

Innihald 48% Merino 26% Mohair 26% pólýester og 2% Teygja.

Þyngd 25 gr.  ca. 188 m.  (50 gr. ca. 375 m.)  

Prjónastærð 2 - 3,5 mm tveir þræðir saman.

Prjónfesta, Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.