OEKO-TEX Mórberja Silki og Merino - 300 gr. - Beinhvítt (100% náttúrulegt)

6.900 kr

Oeko-Tex Silki Merino – Blandan samanstendur af 34% OEKO-TEX Mulberry silki sem er ræktað "alvöru 100% silki" náttúrulegar prótein trefjar og 64% OEKO-TEX Merinoull.

Hér færð þú hreint náttúrulegt garn í mjúkri og sveigjanlegri blöndu af OEKO-TEX Merino og Mórberjasilki. Það er OEKO-TEX vottað og merino ullin er superwash meðhöndluð.  Garnið er spunnið úr 8 þráðum sem hver samanstendur af Mórberjasilkiþræði og Merinóþræði. Prjónað hefur garnið góðan teygjanleika og er virkilega þægilegt viðkomu.

Garnið kemur í beinhvítu og hentar einnnig vel til litunar.

Hvað þýðir Oeko-tex?
OEKO–TEX® Standard 100 er vöruvottun sem gerir kröfur um innihald efna - sem eru eða - grunur leikur á að séu heilsuskaðleg, hér má lesa um vottunina: OEKO-TEX®

Innihald 64% Merino 34% Mulberry Silki (100% ekta silki)

Þyngd 300 gr. sirka 1350 m.   ( 50 gr. ca. 225 m.)

Prjónastærð 2-3 mm.

Prjónfesta  25 lykkjur = 10 cm. 

Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

Til í beinhvítu. (má lita)

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.