Merino Glimmer fylgiþráður 25 gr. Ljósbrúnn

590 kr

Þetta er nú eitthvað 🤩 er ekki alltaf gaman að poppa aðeins upp og smella pínu gliti í handverkið 😉 Hér er á ferð fylgiþráður úr 70% Merino ull 20% Lurex og 10% Polyester.

Þennan krúttlega þráð má nota í hvað sem er. bæði sem fylgiþráð eða 2+ þræði saman. Einstaklega gott að vinna með þetta garn.

Kemur í 2 litum, takmarkað magn í boði.

Innihald 70% Merino 10% polyester 20% Lurex.

Þyngd 25 gr. ca. 200 m.    (50 gr. ca. 400 m)

Prjónastærð 2 - 3 mm 

Prjónfesta, Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.