Trend - 50% Merino 20% Angora 30% Viskos - 50 gr.

1.090 kr

Trend – 50% Merino 20% Angora 30% Viskos - ofurmjúkt garn í td. barnafatnað, bæði eitt og sér og með Mohair. 

Þyngd 50 gr. 

Lengd 50 gr. sirka 250 m.

Ef pantað er 50/100/150/200 gr. er það afgreitt í einni hnotu. 

Prjónastærð 3 mm.

Prjónfesta, á 3 mm. prjóna eru  24 lykkjur = 10 cm.     

Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.                                                     

4 litir - Bleikur, gulur, granítgrár og brúnn.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.