Ítölsk 100% Merinoull 50 gr. - Rauðbrúnn

690 kr

Ítalskt 100% Merino ullargarn.

Ítalska Merino garnið okka er úr 100% merino ull og ber með sér náttúrulega áferð.

Mjúkt og örlítið sveitalegt 4-þráða ullargarn í nátttúrulegum litum, það má nota eitt og sér bæði einfalt eða tvöfalt eða með öðru fylgigarni td. Mohair, hér á síðunni má finna marga fallega liti og blöndur af Mohair, sjá hér: Kid Mohair og Burstað Mohair

Garnið heldur lögun sinni mjög vel og er slitsterkt, slitnar jafnvel ekki eftir langa notkun. Merino garnið hefur gott hald svo flíkin heldur sér vel. Á sama tíma má nota þetta ullargarn í margvíslegum tilgangi, bæði sem prjóna, heklugarn  í peysur, vefnað og margt fleira.

Innihald 100% Merinoull

Þyngd 50 gr. (50 gr. sirka 150 m.)

Prjónastærð 4

Prjónfesta, á 4 mm. prjóna er  21 lykkja = 10 cm. garnið þolir jafnvel stærri prjóna, best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

Ef pantað er 50/100/150 gr. er það afgreitt í einni hnotu. 

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.