Lilas - Burstað Mohair og Alpakka - 50 gr.

1.050 kr

Lilas er Burstað Mohair og Alpakka með örlitlu af Pólýester til styrkingar. Garnið er loðið og dúnkennt, afar mjúkt, meira í átt að Alpakka en Mohair.

Það má prjóna eitt og sér einfalt eða tvöfalt eða blanda með örðu garni, kemur virkilega vel út að blanda með Bómullargarn

Eða fá smá glit með Merino Glimmer

Garnið hentar vel til litunar, kemur eingöngu í beinhvítu.

Innihald 43% Mohair 43% Alpakka og 14% Pólýester.

Þyngd 50 gr. (ca.100 m.).

Prjónastærð 6 – 7 mm.

Prjónfesta:  Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.