
Sonja fylgiþráður 68% Alpakka 30% Polýester 2% Teygja 25 gr. 275 m. Nr. 29
Sonja er mjög mjúkur Alpakka þráður með 2% teygju sem gefur handverkinu fallega og jafna áferð.
Hægt að prjóna eitt og sér, sem fylgiþráður eða fleiri þræðir saman. Hentar í flest verkefni, margir velja hann í staðinn fyrir Mohair.
Kemur í 29 litum.
Innihald 58% Alpakka 31% Pólýester 4% Merino 7% Teygja
Þyngd 25 gr.
Lengd ca. 275 m ( 50 gr. sirka 550 m. )
Prjónastærð 3 - 4 mm.
Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.