Vertigo tweed fylgiþráður - 25 gr. 51% Extra fine Merino, 31% endurunnið Pólýester og 18% endurunnin Bómull. Denimblár.

690 kr

Vertigo tweed gefur handverkinu fallegt útlit , garnið er mjög mjúkt enda um 70% úr náttúrulegum efnum og rest út polýester til að styrkja. Það má bæði nota sem fylgiþráður, eitt og sér á fínni prjóna eða fleiri þræðir saman. 

Kemur í 6 litum.

Innihald 51% Merino extra fine  31% endurunnið Pólýester 18% endurunnin Bómull. 

Þyngd 25 gr.  

Lengd  ca. 170 m   ( 50 gr. sirka 340 m. )

Prjónastærð  2,5-  4 mm.

Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.