Oeko-Tex Sokkagarn ull og nælon 100 gr. - Svartur
Öko-Tex Sokkagarnið okkar er vistvæn dásamleg blanda af Nýsjálenskri ull og nælon.
Hvað þýðir Oeko-tex?
OEKO–TEX® Standard 100 er vöruvottun sem gerir kröfur um innihald efna - sem eru eða - grunur leikur á að séu heilsuskaðleg, hér má lesa um vottunina: OEKO-TEX®
Garnið er svolítið þétt í sér en eftir þvott verður það létt og loftkennt. Garnið hentar einkar vel í hlýja sokka en má vel nota í peysur og fleira. Hentar bæði fyrir prjóna og heklunálar.
Athugið. Litirnir hafa mismunandi blöndu af ull og næloni:
Blár – 64% nýsjálensk ull 36% nylon
Bleikur – 75% nýsjálensk ull 25% nylon
Gulur – 75% nýsjálensk ull 25% nylon
Brúnn – 51% nýsjálensk ull 49% nylon
Grár – 61% nýsjálensk ull 39% nylon
Svartur – 45% nýsjálensk ull 55% nylon
Þyngd 100 gr. sirka 270 m. 50 gr. sirka 135 m.
Prjónastærð 3-5
Munið að gera ykkar eigin prjónfestu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu-símaskjám.
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.