Nora Merino 15/1 100% Merino 250 gr. kónar. Natur.

2.990 kr

Nora er náttúrulegt garn úr 100% óbleiktri beinhvítri meronoull.

 Garnið er eitt af fínni þráðunum og hentar því vel sem fylgiþráður eða prjóna nokkra þræði saman. Hrein ull er einnig frábær til litunar. Nora er mjúkt og loftkennt garn sem gerir það tilvalið í td. barnateppi. Þar sem garnið er óbleikt getur verið náttúrulegur blæbrigðamunur. 

Táknið 15/1 gefur til kynna að Nora er einþráða garn. Þess vegna er hægt að prjóna nokkra þræði saman. Þannig næst meiri styrkur í garnið og auðveldara að vinna með það.🙂

Við höfum prjónað þrjá þræði af Nora Merino 15/1 saman. Niðurstaðan er bæði mjúk, loftkennd og falleg.

Kemur á 250 gr. kónum.

Innihald 100% óbleikt Merino ull.

Þyngd 250 gr. ( 3.750 m. á kóni )

Lengd 50 gr. sirka 750 m.

Prjónastærð  2,5 mm.

Prjónfesta Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er, en hér má sjá prufuprjón yfir prjónastærðir eftir fjölda þráða:

3 þræðir á pr. 3,5 mm: 10 cm = u.þ.b. 24 lykkjur
3 þræðir á pr. 3 mm: 10 cm = u.þ.b. 26 lykkjur

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu-símaskjám.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Þvottur:  Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.