



IRKI Rustic Alpakka - Ljósgrár - 240 gr.
IRKI Rustic Alpakka er milligróft garn, það er mjúkt en samt ekki alvega eins og blásið Alpakka, kemur í 240 gr. hespum, hentar í hvað sem er.
Innihald 80% Alpakka 20 Pólýester.
Þyngd 240 gr.
Lengd ca. 880 m ( 50 gr. sirka 185 m. )
Prjónastærð 4 mm.
Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.