Horus - 70% Mohair 30% Merinoull 250 gr. - Beinhvítt

5.990 kr

Horus er beinhvítt silkimjúkt Mohair Merino blandað garn.

Fallegt garn úr hreinum náttúruefnum. Silkimjúk blanda af 70% mohair og 30% merino með fellegum gljáa. Garnið passa einstaklega vel með Baby Alpakka Merino og Baby Alpakka Suri (væntanlegt í veiðigrænu og dökkbeige).

Garnið hentar vel til litunar.

Innihald 70% Mohair 30% Merino

Þyngd  250 gr. 

Lengd  50 gr. sirka 100 m.

Prjónastærð 4 mm.

Prjónfesta: 20 lykkjur = 10 cm.  Munið að gera ykkar eigin prjófestu.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.