Freddie - 30% Merino 35% Alpakka og 35% Mohair - 250 gr. Hvítt/Natur

5.900 kr

Freddie – 30% Merino 35% Alpakka og 35% Mohair - Skemmtileg blanda af ull og Mohair, mjög áferðafallegt og mjúkt garn. 100% náttúrulegt.

Innihald 30% Merino 35% Alpakka og 35% Mohair  

Þyngd 250 gr. sirka 500 m. 

Prjónastærð 4-5 mm.

Prjónfesta, á 4,5 mm. prjóna er  20 lykkja = 10 cm. 

Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

Til í hvítu. (má lita)

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.