Blásið Alpakka - Fylgiþráður - 25 gr. Litur A3 - 490 kr.

490 kr

Fyrir þá sem geta ekki notað Mohair sem fylgiþráð þá er þetta garn lausnin.  67% Alpakka og 33% Polýester, mjög mjúkt og létt.

Garnið er ekki spunnið á hefðbundin hátt heldur er ullinni blásið inn í hólk úr Pólýester sem gefur því sérlega mikinn léttleika.

Hentar fullkomnlega með td. 100% Ítölsku Merino 100% Ítalskt Merino

Fengum 20 liti, mis mikið af hverjum lit.

Ef pantað er 50/75/100 gr. er það afgreitt í einni hnotu. (færri endar að fela ,)
 
Innihald 67% Alpakka 33% Polyester

25 gr. eru sirka 250 metrar.

Prjónastærð 3-4 mm.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.