Baby Alpakka Merino ull 250 gr. - Nr.24 Laxableikur

4.990 kr

Baby Alpakka Merino ullarblandan er ofurmjúkt og áferðafallegt garn úr 100% náttúrulegum efnum. 60% Baby Alpakka og 40% Merino. Hreint lúxusgarn og alveg dásamlegt að vinna með.

Baby Alpakka Merino hentar td. í peysur, vesti, teppi og fl. Er bæði fyrir prjóna og heklunálar. Garnið kemur í sirka 250 gr. hespum og þarf því að vinda upp. Þegar við segjum sirka þýðir það að garnið gæti verið örlítið undir eða yfir 250 gr. Að hámarki 4% frávik. Gott er að nota garnvindu og hesputré til að vinda upp garnið áður en byrjað er. Einnig má vinda upp í höndunum með því að setja hespuna á stólbak eða fá aðstoðarmann í að halda á henni meðan hún er undin í hnykil.

Smá leyndó 🤫 þar sem garnið kemur í einni 250 gramma hespu eru færri endar að fela 😜 

Innihald 60% Alpakka 40% Merino 

Þyngd 250 gr. 

Lengd 50 gr. sirka 100 m.

Prjónastærð 3½ – 5 mm.

Prjónfesta: Við mælum með prjónastærð 3½ – 5. Á prjóna nr. 4 eru 20 lykkjur = 10 cm. Á prjóna nr. 5 eru 17 lykkjur = 10 cm. Garnið þolir jafnvel stærri prjóna. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.