Baby Alpakka Merino - Nr.17 Dökkgrænn 50 gr.

1.090 kr

Baby Alpakka Merino ullarblandan er ofurmjúkt og áferðafallegt garn úr 100% náttúrulegum efnum. 60% Baby Alpakka og 40% Merino. Hreint lúxusgarn og alveg dásamlegt að vinna með.

Baby Alpakka Merino hentar bæði í barnafatnað jafnt sem á fullorðna, í peysur, vesti, teppi og fl. 

ATH. þetta er sama garnið og sami litur og er í 250 gr. hespunum.

Innihald 60% Alpakka 40% Merino 

Þyngd 50 gr. 

Lengd 50 gr. sirka 100 m.

Prjónastærð 3½ – 5 mm.

Prjónfesta: Við mælum með prjónastærð 3½ – 5. Á prjóna nr. 4 eru 20 lykkjur = 10 cm. Á prjóna nr. 5 eru 17 lykkjur = 10 cm. Garnið þolir jafnvel stærri prjóna. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.