



Vertigo tweed fylgiþráður - 25 gr. 51% Extra fine Merino, 31% endurunnið Pólýester og 18% endurunnin Bómull. Kóngablár.
Vertigo tweed gefur handverkinu fallegt útlit , garnið er mjög mjúkt enda um 70% úr náttúrulegum efnum og rest út polýester til að styrkja. Það má bæði nota sem fylgiþráður, eitt og sér á fínni prjóna eða fleiri þræðir saman.
Kemur í 6 litum.
Innihald 51% Merino extra fine 31% endurunnið Pólýester 18% endurunnin Bómull.
Þyngd 25 gr.
Lengd ca. 170 m ( 50 gr. sirka 340 m. )
Prjónastærð 2,5- 4 mm.
Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.
ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu.
Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.
Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.
Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?
Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.
Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.
Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.