Suri Alpakka fylgiþráður - 25 gr. Koral

590 kr

Þessi ofurmjúki fylgiþráður innihledur hátt hlutfalla af Alpakka ull.

 Garnið má einnig prjóna eitt og sér eða fleiri þræðir saman. Það er mjög mjúkt viðkomu, gefur gott hald og fallega áferð. Inniheldur 70% Alpakka 30% Pólýester.

Kemur í 2 fallegum litum, Koral og Ljós brúnu.

Innihald 70% Alpakka  30 Pólýester. 

Þyngd 25 gr.  

Lengd  ca. 250 m   ( 50 gr. sirka 500 m. )

Prjónastærð 2 - 3 mm.

Prjónfesta: Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.