Atena - Burstað Mohair 250 gr. - Hvítt/Nature

3.990 kr

Atena - Burstað Mohair - Garnið er mjög lét í sér og dúnkennt.

Innihald 56 % merino 24 % mohair 20 % polýester 

Þyngd 250 gr. (ca.1125 m)  

Lengd 50 gr. sirka 225 m.

Prjónastærð 4½ – 5½ mm.

Kom í hvítu/nature (má lita)

Prjónfesta: Við mælum með prjónastærð 4½ – 5½.

Við gerðum prjónaprufu,16  lykkjur = 10 cm. Á prjóna nr. 6  Fyrir tvöfaldan þráð má nota  prjónast. 9-10 mm. Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.