50% Loðið Mohair 32% Merino 16% Polyester 2% Teygja 50 gr. Brúnn

1.190 kr

Þetta fallega Ítalska Mohair garn er með langa þræði af Mohair sem gefur flíkinni mikla fyllingu, gerir það einnig mýkra og síður að hárin fallir úr. Það er örlítil teygja í því.

Góð blanda af 50% Ítölsku gæða Mohair, 32% Merino 16% Polyester og 2% Teygja

Þú getur notað garnið sem fylgiþráð eða tveir þræðir saman á prjóna nr. 3,5 - 4,0 mm.

Kemur í 3 litum á kílóa kónum, reynt er að spóla eins mikið í eina dokku og unnt er ef pantað er meira en 50 gr.

Innihald 50% Mohair 32% Merino 16% pólýester og 2% Teygja.

Þyngd 50 gr. ca. 265 m.  

Prjónastærð 3,5-4 mm tveir þræðir saman.

Prjónfesta, Best er að gera sína eigin prjónfestu áður er byrjað er.

ATH. Allar garntegundir sem eru í boði á síðunni eru í sömu litalotu. 

Hafið í huga að litirnir geta verið mismunandi eftir tölvu eða símaskjám.

Þvottur: Sjá nánar undir Fróðleikur hér á síðunni.

Hvers vegna er garnið okkar ekki tiltekið vörumerki?

Garnið kemur frá landi hönnunar og hátísku, sjálfri Ítalíu. Garnið kemur frá fataframleiðendum sem hafa pantað garn umfram þarfir í tilteknar vörulínur. Það er gjarnan gert til að eiga örugglega efni fyrir væntanlegar pantanir.

Hér er því um að ræða garn sem er í hærri gæðum en venjulega er fáanlegt á hinum almenna markaði enda gera þekktu tískuhúsin og vörumerkin miklar kröfur til efna. Hér gefst þér tækifæri á að kaupa gæða garn á góðu verði.

Með kaupum á umfram framleiðslu eins við bjóðum, ertu ekki einungis að kaupa gæðagarn. Þú ert einnig að leggja þitt að mörkum til umhverfismála.